Leit
LokaSamsetning heilblóðs
Heilblóð samanstendur af rauðum blóðkornum, hvítum blóðkornum, blóðflögum og blóðvökva. Þegar blóðgjafi hefur gefið blóð fer blóðpokinn í blóðhlutavinnsluna og er þar skipt upp í þessa blóðhluta með skilvindu. Þannig getur þú verið að bjarga allt að 2-3 einstaklingum með einni blóðgjöf.
Aðalhlutverk rauðra blóðkorna er að flytja súrefni frá lungum til vefja líkamans og koltvísýring frá vefjum til lungna. Þau geymast í allt að 6 vikur í kæli. Rauð blóðkorn eru t.d. gefin til einstaklinga sem eru með lágar blóðbirgðir eða hafa orðið fyrir miklu blóðtapi.
Blóðflögur eru myndaðar í beinmerg. Þær gegna til dæmis hlutverki við stöðvun blæðinga og viðgerð æðaveggja. Blóðflögurnar streyma að skemmdinni, loða hver við aðra og mynda í raun tappa í sárinu. Blóðflögur eru mjög viðkvæmar og eru geymdar í sérstökum skápum við 22C° á stöðugri hreyfingu. Geymslutími er sjö sólarhringar (ein vika). Blóðflöguþykkni eru m.a. gefin fólki í krabbameinsmeðferð en einnig notuð við miklar blæðingar, slys og flóknar aðgerðir, s.s. hjartaaðgerðir
Blóðvökvi er sá vökvi sem frumur heilblóðs fljóta í og er að mestum hluta vatn. Einnig inniheldur hann hlaðin atóm, svokallaðar jónir ( t.d. kalíum, natríum og klóríð )og ýmis prótein eins og mótefni og storkuþætti. Blóðvökvi er geymdur frystur við -30°C og er geymslutími allt að tvö ár. Blóðvökvi er einkum notaður þegar bæta þarf tap á mikilvægum storkuþáttum, t. d. við flóknar skurðaðgerðir, alvarlegar sýkingar, bruna og slys.
Hvítu blóðkornin eru stór hluti af ónæmiskerfi líkamans Hvít blóðkorn eru sérhæfðar frumur sem sjá um að eyða sýklum og öðrum aðskotaefnum úr líkamanum. Þau geta innihaldið mótefni og eru því síuð frá áður en blóð er gefið til sjúklinga.