Spurt og svarað um blóðgjöf vegna COVID-19
Ekki má gefa blóð ef innan við 7 dagar hafa liðið frá bólusetningu fyrir Covid-19 og ef stungustaður er bólginn og ekki fullkomlega gróinn. Veikindi eftir bólusetninguna, ekki gefa blóð ef innan við 7 dagar eru liðnir frá því einkenni hurfu
Mikilvægt er drekka og borða vel fyrir og eftir blóðgjöf. Blóðbankinn býður upp á veitingar. Sérstök áhersla er lögð á smitvarnir og hreinlæti í kaffistofu blóðgjafa.
Sjá reglur Blóðbankans sem gilda almennt um kvef: https://blodgjafi.is/1282. Hins vegar skal meðan Kórónufaraldurinn stendur yfir hafa reglur um kórónaveirur í huga sjá á: COVID-19 faraldurinn stendur yfir: . Blóðgjafar eru alltaf beðnir um að láta vita ef þeir veikjast innan 14 daga frá blóðgjöf og er það sérstaklega mikilvægt meðan þessi faraldur gengur yfir.
Gefa má blóð ef 2 dagar hafa liðið frá lokum sóttkvíar hvort sem hún er sjálfskipuð eða samkvæmt tilmælum heilbrigðisstarfsfólks. Sjá: Upplýsingar varðandi COVID-19 á blóðgjafavefnum.
Einstaklingur í sóttkví sbr vef Landlæknis um sótkví má ekki fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til. Sóttkví er notuð þegar einstaklingur hefur mögulega smitast en sýnir engin einkenni um sjúkdóminn. Vegna möguleikans á smitun má einstaklingur í sóttkví ekki gefa blóð. Sjá nánar á blodgjafi.is
Minnkar mótstaða líkamans gegn sýkingum og veikindum eins og kórónavírusnum COVID-19 ef ég gef blóð?
Hjá hraustu fólki sem stenst heilsufarsskilmerki Blóðbankans eru litlar líkur á að blóðgjöfin hafi neikvæð áhrif á heilsufar eða auki líkur á sýkingum eða öðrum veikindum. Gerðar eru blóðrannsóknir við hverja blóðgjöf þar sem m.a. er mældur blóðrauði og fjöldi blóðfruma. Auk þess er farið ítarlega yfir hvort um veikindi hafi verið að ræða, læknisheimsóknir eða læknisfræðilegar rannsóknir frá síðustu blóðgjöf. Eins og alltaf er mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir blóðgjöf sbr. upplýsingaritið: Fræðsla við fyrstu komu, svo að blóðgjöfin gangi sem best fyrir sig og líðanin eftir blóðgjöf verði góð.
Blóðsýni frá blóðgjafa eru ekki skimuð sérstaklega fyrir kórónuveirum, hvorki erlendis né á Íslandi. Ef blóðgjafi stenst öll heilsufarsskilmerki fyrir blóðgjafa auk sérstakra skilmerkja vegna kórónuveiru (sjá https://blodgjafi.is/1289) er talið mjög ósennilegt að blóðgjafinn sé smitaður. Ekki hefur verið sýnt fram á að veiran berist til sjúklinga við blóðinngjöf.